Stýring C

Stýring C hentar þeim sem þola nokkrar sveiflur í ávöxtun á séreignarsparnaði sínum, til dæmis þeim sem eru í miðjum starfsferli sínum. Leiðin fjárfestir með dreifðum hætti í skuldabréfum, hlutabréfum og innlánum.

Nafnávöxtun

Fjárfestingartími

Sveiflur í ávöxtun

af 7

Mælikvarði á áhættu og sveiflur í ávöxtun

Helstu eiginleikar

  • Virk stýring og eignadreifing milli skuldabréfa og hlutabréfa

  • Sérfræðingar vakta tækifæri á markaði

  • Skattalegt hagræði

Tegund
Stofnár
2010
Grunnmynt
ISK
Eignasamsetning
  • 71,7% Innlend skuldabréf
  • 0% Erlend skuldabréf
  • 9,4% Innlend hlutabréf
  • 16,1% Erlend hlutabréf
  • 2,8% Innlán

Síðast breytt: 31.10.2024

Markmið

Markmið þessarar leiðar er virk stýring milli skuldabréfa og hlutabréfa. Stefnt er að góðri áhættudreifingu og stöðugri ávöxtun.

Í hverju fjárfestir sjóðurinn?

Fjárfest er í skuldabréfum með ábyrgð ríkisins, skuldabréfum fjármálastofnana, innlánum, skuldabréfum bæjar- og sveitarfélaga ásamt því að nýta tækifæri á hlutabréfamarkaði. Verðtryggingarhlutfall skuldabréfasafns er á bilinu 20-90%.

Upplýsingablað

Gengisþróun


Berið saman fjárfestingarleiðir

Þú getur skoðað yfirlit yfir nafnávöxtun á öllum fjárfestingarleiðum okkar. Við minnum á að árangur í fortíð er ekki ávísun á árangur í framtíð.

Skjöl og gögn


Upplýsingablað
PDF
Lykilupplýsingaskjal
PDF
Ávöxtun og eignasamsetning
PDF
Fjárfestingarstefna
PDF

Reglur um Framtíðarauð
PDF
Verðskrá verðbréfaþjónustu
PDF

Fyrir­varar


Almennur fyrirvari vegna séreignarsparnaðar

Fjárfestingum í fjármálagerningum fylgir ávallt fjárhagsleg áhætta, svo sem hætta á lítilli eða engri ávöxtun eða að höfuðstóll tapist. Ávöxtun í fortíð er hvorki vísbending um né trygging fyrir ávöxtun í framtíð. Ávöxtun getur aukist eða minnkað vegna gengisflökts þegar við á. Skattaleg meðferð ræðst af aðstæðum hvers viðskiptavinar fyrir sig og getur tekið breytingum í framtíðinni.

Framtíðarauður er séreignarsparnaður samkvæmt lögum nr. 129/1997 um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða. Íslandsbanki er vörsluaðili Framtíðarauðs. Viðskiptavinir eru hvattir til að kynna sér vel reglur Framtíðarauðs og fjárfestingarstefnu mismunandi fjárfestingarleiða.

Upplýsingar á síðunni eru aðeins birtar í upplýsingaskyni og skal ekki líta á þær sem tilboð eða ráðgjöf um kaup, sölu eða aðra ráðstöfun tiltekinna fjármálagerninga. Íslandsbanki hf. ber enga ábyrgð á fjárfestingarákvörðunum sem teknar eru á grundvelli upplýsinga á síðunni. Upplýsingarnar byggja á heimildum sem eru taldar áreiðanlegar en ekki er hægt að ábyrgjast nákvæmni né réttmæti þeirra. Áskilinn er réttur til leiðréttinga.

Gengisþróun og ávöxtun

Tekið er tillit til umsýslugjalds við daglegan útreikning á gengi fjárfestingarleiða. Ávöxtun umfram 12 mánuði er reiknuð yfir á ársgrundvöll. Ávöxtun styttri tímabila er ekki umreiknuð á ársgrundvöll heldur er um gengisbreytingu að ræða. Uppreikningur ávöxtunar miðast við síðasta skráða gengi og er í grunnmynt hverrar fjárfestingarleiðar.