Persónuvernd


Meðferð persónuupplýsinga

Íslandsbanki hf. leggur ríka áherslu á að gæta persónuverndar í starfsemi sinni og hefur sett sér persónuverndarstefnu í því skyni.   

Hér á eftir verður farið yfir hvernig bankinn fer með persónuupplýsingarnar þínar sem ábyrgðaraðili vinnslu þeirra, t.d. hvernig þeim verður safnað, þeim miðlað, þær skráðar, unnar, varðveittar og hvernig öryggis þeirra er gætt þannig að það samræmist gildandi persónuverndarlögum á hverjum tíma. Einnig verður farið yfir á hvaða grundvelli persónuupplýsingarnar eru unnar, hver réttindi þín eru samkvæmt persónuverndarlögum og hvernig þú hefur samband við okkur vegna meðferðar persónuupplýsinga. 

Staðsetning: Ákveðin þjónusta eða aðgerðir í stafrænum lausnum sækja staðsetningu tækis út frá GPS hnitum, netkerfum eða dreifikerfi símafyrirtækja, t.d. upplýsinga um afgreiðslustaði og hraðbanka. Hægt er að stýra aðgengi að slíkum þjónustum í snjalltækinu sjálfu. Bankinn sækir ekki upplýsingar um staðsetningar úr snjalltækinu nema með heimild þinni.