IS Veltusafn
Sjóðurinn hentar þeim sem vilja ávaxta sparnað í þrjá mánuði eða lengur og fá jafna og stöðuga ávöxtun.
Sjóðurinn hentar þeim sem vilja ávaxta sparnað í þrjá mánuði eða lengur og fá jafna og stöðuga ávöxtun.
Nafnávöxtun
Fjárfestingartími
Sveiflur í ávöxtun
Mælikvarði á áhættu og sveiflur í ávöxtun
Síðast breytt: 1.12.2024
Halda sveiflum á gengi í lágmarki með mjög stuttum líftíma eigna og skila jafnri og stöðugri ávöxtun. Sjóðurinn nýtir tækifæri á markaði með virkri stýringu innlána, víxla og ríkisskuldabréfa.
Sjóðurinn hentar fjárfestum sem vilja ávaxta fé í skamman tíma. Meðallíftími fjárfestinga sjóðsins getur verið á bilinu 0 til 1 ár. Stuttur meðallíftími gerir það að verkum að gengi sjóðsins verður stöðugra en ella og að ólíklegt er að gengi hans lækki verulega sökum vaxtahækkunar. Enn fremur hefur hátt hlutfall innlána þau áhrif að gengið breytist lítið með sveiflum á markaði.
UpplýsingablaðAlmennur fyrirvari vegna fjárfestinga í sjóðum
Fjárfestingum í fjármálagerningum fylgir ávallt fjárhagsleg áhætta, svo sem hætta á lítilli eða engri ávöxtun eða að höfuðstóll tapist. Ávöxtun í fortíð er hvorki vísbending um né trygging fyrir ávöxtun í framtíð. Áhætta af fjárfestingu eykst ef fjárfestingin er fjármögnuð með lánsfé og ávöxtun getur aukist eða minnkað vegna gengisflökts þegar við á. Skattaleg meðferð ræðst af aðstæðum hvers viðskiptavinar fyrir sig og getur tekið breytingum í framtíðinni.
Fjárfestar eru hvattir til að kynna sér vel lykilupplýsingar og útboðslýsingar sjóða en þar er að finna nánari upplýsingar um viðkomandi sjóð, m.a. um áhættuþætti, fjárfestingarheimildir og notkun afleiðna. Fjárfestingarsjóðir hafa víðtækari fjárfestingarheimildir en verðbréfasjóðir og geta því verið áhættusamari fjárfesting. Upplýsingar um sjóðina eru fengnar frá Íslandssjóðum hf., rekstrarfélagi sjóðanna sem er dótturfélag Íslandsbanka hf.
Upplýsingar á síðunni eru aðeins birtar í upplýsingaskyni og skal ekki líta á þær sem tilboð eða ráðgjöf um kaup, sölu eða aðra ráðstöfun tiltekinna fjármálagerninga. Upplýsingarnar byggja á heimildum sem eru taldar áreiðanlegar en ekki er hægt að ábyrgjast nákvæmni eða réttmæti þeirra. Áskilinn er réttur til leiðréttinga.
Gengisþróun og ávöxtun
Tekið er tillit til umsýsluþóknunar við daglegan útreikning á gengi sjóða. Ávöxtun umfram 12 mánuði er reiknuð yfir á ársgrundvöll. Ávöxtun styttri tímabila er ekki umreiknuð á ársgrundvöll heldur er um gengisbreytingu að ræða. Uppreikningur ávöxtunar miðast við síðasta skráða gengi og er í grunnmynt hvers sjóðs.