IS Ríkisskuldabréf meðallöng
Sjóðurinn hentar þeim sem vilja ávaxta sparnað í tvö ár eða lengur í sjóði þar sem fjárfest er í skuldabréfum með ábyrgð ríkissjóðs með áherslu á verðtryggð bréf.
Sjóðurinn hentar þeim sem vilja ávaxta sparnað í tvö ár eða lengur í sjóði þar sem fjárfest er í skuldabréfum með ábyrgð ríkissjóðs með áherslu á verðtryggð bréf.
Nafnávöxtun
Fjárfestingartími
Sveiflur í ávöxtun
Mælikvarði á áhættu og sveiflur í ávöxtun
Síðast breytt: 1.12.2024
Langtíma ávöxtun með fjárfestingum í ríkisskuldabréfum, bæði verðtryggðum og óverðtryggðum.
IS Ríkisskuldabréf meðallöng hentar fjárfestum sem vilja ávaxta fé í tvö ár eða lengur og er mælt með því að sjóðurinn sé hluti af stærra verðbréfasafni. Meðaltími skuldabréfaeignar sjóðsins getur verið á bilinu 4 til 7 ár, þannig að gengi sjóðsins er næmt fyrir breytingum á ávöxtunarkröfu og getur lækkað tímabundið.
UpplýsingablaðAlmennur fyrirvari vegna fjárfestinga í sjóðum
Fjárfestingum í fjármálagerningum fylgir ávallt fjárhagsleg áhætta, svo sem hætta á lítilli eða engri ávöxtun eða að höfuðstóll tapist. Ávöxtun í fortíð er hvorki vísbending um né trygging fyrir ávöxtun í framtíð. Áhætta af fjárfestingu eykst ef fjárfestingin er fjármögnuð með lánsfé og ávöxtun getur aukist eða minnkað vegna gengisflökts þegar við á. Skattaleg meðferð ræðst af aðstæðum hvers viðskiptavinar fyrir sig og getur tekið breytingum í framtíðinni.
Fjárfestar eru hvattir til að kynna sér vel lykilupplýsingar og útboðslýsingar sjóða en þar er að finna nánari upplýsingar um viðkomandi sjóð, m.a. um áhættuþætti, fjárfestingarheimildir og notkun afleiðna. Fjárfestingarsjóðir hafa víðtækari fjárfestingarheimildir en verðbréfasjóðir og geta því verið áhættusamari fjárfesting. Upplýsingar um sjóðina eru fengnar frá Íslandssjóðum hf., rekstrarfélagi sjóðanna sem er dótturfélag Íslandsbanka hf.
Upplýsingar á síðunni eru aðeins birtar í upplýsingaskyni og skal ekki líta á þær sem tilboð eða ráðgjöf um kaup, sölu eða aðra ráðstöfun tiltekinna fjármálagerninga. Upplýsingarnar byggja á heimildum sem eru taldar áreiðanlegar en ekki er hægt að ábyrgjast nákvæmni eða réttmæti þeirra. Áskilinn er réttur til leiðréttinga.
Gengisþróun og ávöxtun
Tekið er tillit til umsýsluþóknunar við daglegan útreikning á gengi sjóða. Ávöxtun umfram 12 mánuði er reiknuð yfir á ársgrundvöll. Ávöxtun styttri tímabila er ekki umreiknuð á ársgrundvöll heldur er um gengisbreytingu að ræða. Uppreikningur ávöxtunar miðast við síðasta skráða gengi og er í grunnmynt hvers sjóðs.