Við trúum á góðar hugmyndir

Styrkir úr Frumkvöðlasjóði Íslandsbanka eru veittir einu sinni á ári. Umsóknarfrestur er frá 26. september til og með 27. október 2024.

Hreyfiafl til góðra verka


Við viljum vera hreyfiafl til góðra verka í samfélaginu og styðja við sjálfbæra þróun í samfélaginu. Við veitum styrki til verkefna sem styðja við þau fjögur heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna sem Íslandsbanki hefur valið að leggja sérstaka áherslu á og má sjá hér að neðan. Þannig hvetjum við til sjálfbærrar nýsköpunar. Umsækjendur eru hvattir til að líta sérstaklega til undirmarkmiðanna og tilgreina tengingar við þau í umsóknarferlinu ásamt því að kynna sér vel almenn skilyrði sjóðsins. Hægt er að sækja um styrk á bilinu 500.000 - 5.000.000 kr.
Umsóknarfrestur er frá 26. september til miðnættis 27. október 2024.

Heimsmarkmiðin fjögur

  • Menntun fyrir öll #4

  • Jafnrétti kynjanna #5

  • Nýsköpun og uppbygging #9

  • Aðgerðir í loftslagsmálum #13

Markmið sjóðsins


Markmið sjóðsins er að hvetja til nýsköpunar og þróunar og styðja við bakið á frumkvöðlaverkefnum sem stuðla að ofangreindum heimsmarkmiðum sem bankinn leggur sérstaka áherslu á. Íslandsbanki greiðir 0,1% mótframlag í sjóðinn af innstæðu Vaxtasprota sparnaðarreikningum á ársgrundvelli.

Stjórn sjóðsins


  • Ari Kristinn Jónsson, fyrrum rektor Háskólans í Reykjavík
  • Ragnheiður H. Magnúsdóttir, stofnandi englafjárfestingafélagsins Nordic Ignite og ráðgjafi hjá Möggum
  • Una Steinsdóttir, framkvæmdastjóri Viðskiptabankasviðs Íslandsbanka 

Stjórn sjóðsins er tilnefnd af bankastjóra Íslandsbanka og ber ábyrgð á að móta og taka ákvörðun um fjárfestingastefnu sjóðsins.

Sjóðsstjórn úthlutar fé úr sjóðnum til verkefna og auglýsir eftir umsóknum samkvæmt úthlutunarreglum.

Fyrirspurnir sendist á netfangið: frumkvodlasjodur@islandsbanki.is.