Snertilaust
Hægt er að greiða snertilaust með símanum eða snjallúrinu á fljótlegan og einfaldan hátt. Það er engin hámarksupphæð við þessar greiðslur en þegar greitt er snertilaust með kortinu sjálfu að hámarki 7.500 kr. hver færsla.
Greiða með Android
Þú getur tengt kort við Google Wallet og greitt með símanum og líka Fitbit og Garmin snjallúr. Ekki er hámark á upphæð.
ATH. Ef snertilausar greiðslur virka ekki er gott að hafa eftirfarandi atriði í huga:
- Passa þarf að kveikt sé á NFC virkni símans.
- Kannaðu í appinu hvort kort hafi ekki verið virkjað fyrir snertilausum greiðslum.
- Ef þú ert með virkjað Face-ID eða Fingerprint þá gætir þú prófað að breyta læsingu símans yfir í PIN-númer og athuga hvort snertilausar greiðslur virki eftir breytingar.
Greiða með iOS
Þú getur tengt kort við Apple Wallet og greitt með Apple símum, úrum og spjaldtölvum. Ekki er hámark á upphæð.
Greiða snertilaust með korti
- Hver snertilaus greiðsla á korti getur að hámarki verið 7.500 kr.
- Samanlögð upphæð snertilausra greiðslna á korti getur ekki verið hærri en 15.000 kr. á milli þess sem kortið er notað á hefðbundinn hátt og greiðsla er staðfest með PIN númeri.
- Þegar hámarksupphæð snertilausra greiðslna er náð þarf að staðfesta greiðslu með PIN númeri til þess að hægt sé að hefja snertilausar greiðslur á ný.
Fleiri aðgerðir í appinu
Með appinu sinnir þú allri helstu bankaþjónustu á einum stað á einfaldan og öruggan hátt.