Leiðbeiningar: Hvernig á að sækja um rafræn skilríki

Hér má nálgast leiðbeingar um hvernig hægt er að sækja um rafræn skilríki.


  1. Fyrst þarftu að fara inn á vef Auðkennis.
  2. Þar stimplar þú símanúmerið þitt til þess að athuga hvort að síminn þinn styðji rafræn skilríki.
  3. Ef síminn þinn styður rafræn skilríki birtist valmöguleikinn „Afgreiðslustaðir rafrænna skilríkja“ og þú smellir á hann.
  4. Þá birtast valmöguleikar um ólíka landshluta. Til að fá rafræn skilríki í síma er nauðsynlegt að mæta á afgreiðslustað rafrænna skilríkja. Veldu þann landshluta sem hentar þér. Til dæmis gætir þú valið „Höfuðborgarsvæðið“.
  5. Næsta skref er að velja þann viðskiptabanka sem þú hefur þín viðskipti við eða af sérstakt útibú rafrænna skilríkja. Til dæmis gætir þú valið „Íslandsbanka“.
  6. Þá birtist listi yfir staðsetningar þeirra útibúa sem þú getur mætt í svo ganga megi frá umsókninni.
  7. Þegar þú mætir á staðinn er nauðsynlegt að hafa meðferðis gild skilríkji, svo sem ökuskírteini frá norðurlöndunum eða vegabréf. ATHUGIÐ - Stafrænu ökuskírteinin eru EKKI samþykkt sem persónuskilríki.
  8. Starfsmaður í útibúi aðstoðar þig við næstu skref.
  9. Ferlið ætti ekki að vera tímafrekt og ætti ekki að taka meira en um það bil 15-20 mínútur.