Það fór kannski ekki mikið fyrir því en vextirnir sem við höfum verið að biðja um í gegnum árin eru mættir á svæðið. Það hefði nú einhvern tímann þótt saga til næsta bæjar hér á landi að hægt væri að taka óverðtryggt húsnæðislán á tæplega 4% vöxtum en nú er svo komið að okkur bjóðast óverðtryggð lán á svipuðum vöxtum og fylgdu verðtryggðri lántöku fyrir fáeinum árum.
Vaxtalækkanirnar koma bæði til af góðu og slæmu. Framan af treysti peningastefnunefnd Seðlabankans sér til að lækka nokkuð vexti vegna óvenju mikils stöðugleika í verðlagi og verðbólguvæntingum en upp á síðkastið hafa stór lækkunarskref verið stigin til að bregðast við efnahagslegum afleiðingum COVID-19.
Stóru tíðindin fyrir almenning eru þau að segja má að óverðtryggð íbúðalán séu nú í fyrsta sinn aðgengilegur og raunhæfur kostur fyrir almenning og mikilvægi þess skal ekki vanmetið. Vextirnir eru ekki víðsfjarri því sem bjóðast húsnæðiseigendum vestanhafs og á svipuðum slóðum og Danir fengu fyrir um áratug. Vissulega hafa vextir einnig lækkað heilmikið víða í Evrópu og áður óþekkt vaxtakjör í boði en þó við séum enn með hærri vexti en nágrannalöndin blasir gjörbreyttur lánamarkaður við íslenskum neytendum.
Sem dæmi má nefna að 30 milljón króna lán í ársbyrjun 2013 gat borið um 7% óverðtryggða vexti, en í dag um 3,7% vexti hjá sömu lánastofnun. Munar þar um 80.000 krónum á mánuði í greiðslubyrði. Fleiri geta því tekið óverðtryggð lán, borgað þau upp á skemmri tíma, komið sér þaki yfir höfuðið eða haft meira fjárhagslegt svigrúm en áður.
En er þetta lága vaxtastig komið til að vera? Við í Greiningu Íslandsbanka spáum því að vaxtalækkun Seðlabankans á dögunum hafi verið sú síðasta í bili en ekki sé ólíklegt að eitt skref verði stigið til viðbótar þegar líður á árið. Rétti efnahagslífið nokkuð fljótlega úr kútnum að nýju má búast við einhverjum vaxtahækkunum en ef nýju hagvaxtartímabili fylgir þokkalegur stöðugleiki er ekki loku fyrir það skotið að hægt verði að halda vöxtum lægri en við höfum áður þekkt hér á landi. Það væri svo sannarlega kærkomin kjarabót.
Greinin birtist fyrst á Vísi