Íslandsbanki hf. verður með útboð á sértryggðum skuldabréfum þriðjudaginn 3. nóvember 2020.
Boðnir verða út flokkarnir ISLA CB 23, ISLA CB 27 og ISLA CBI 28.
Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 10. nóvember 2020.
Verðbréfamiðlun Íslandsbanka hefur umsjón með útboðinu. Tilboðum skal skilað á tölvupóstfangið vbm@isb.is fyrir kl. 16:00 þann 3. nóvember 2020.