Gamla metið, sem sett var í fyrra, var 199 milljónir króna. Þar á undan höfðu mest safnast 169 milljónir króna árið 2019. Ætla má að bætast muni enn frekar í söfnunina í ár því hægt er að heita á hlaupara út daginn í dag, mánudaginn 26. ágúst. Afraksturinn af söfnuninni rennur óskiptur til þeirra 180 góðgerðafélaga sem eru á skrá hjá Reykjavíkurmaraþoninu.
Nýtt met sett í áheitasöfnun
Rúmlega 257 milljónir króna hafa safnast í áheitasöfnun Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka, sem er langhæsta upphæð sem safnast hefur í hlaupinu til þessa.
Starfsfólk Íslandsbanka er afskaplega þakklátt öllum sem hlupu og ekki síður þeim sem lögðu sitt af mörkum til söfnunarinnar. Hlaupið sjálft fór ótrúlega vel fram og á ÍBR heiður skilinn fyrir skipulagningu þess,” segir Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri Íslandsbanka. „Stefna Íslandsbanka er að vera hreyfiafl til góðra verka og Reykjavíkurmaraþonið er skýrt dæmi um það enda mun söfnunarféð koma að góðum notum hjá þeim fjölmörgu góðgerðafélögum sem hlaupið var fyrir.
Alls voru 14.646 skráðir til leiks sem eru rúmlega 3.000 fleiri en á síðasta ári. Þar af voru 7.514 karlar skráðir, 7.069 konur og 23 kvár. Uppselt var bæði í hálft maraþon og 10 km hlaup, og aðeins örfáir miðar voru eftir í heilt maraþon. Gríðarlega mikil stemning var í miðbænum og fögnuðu áhorfendur vel og mikið fyrir þreyttum hlaupurum sem komu í mark.
Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka fagnaði 40 ára afmæli í ár. Þá var því einnig fagnað að 40 ár eru liðin frá því að Fríða Bjarnadóttir hljóp fyrst íslenskra kvenna maraþon á Íslandi. Fríða ræsti hálft og heilt maraþon, ásamt Einari Þorsteinssyni borgarstjóra, og Knútur Óskarsson, einn af upphafsmönnum maraþonsins, og Jón Guðni, bankastjóri Íslandsbanka, ræstu 10 km hlaupið.