Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á sértryggðum skuldabréfum.
Heildareftirspurn í útboðinu var 7.660 m.kr. og samþykkt tilboð voru samtals 5.980 m.kr.
Samþykkt tilboð í óverðtryggða flokkinn ISLA CB 21 voru samtals 2.320 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 5,55%. Heildartilboð voru 3.400 m.kr. á bilinu 5,45% - 5,87%. Heildarstærð flokksins verður 2.320 m.kr. eftir útgáfuna.
Samþykkt tilboð í óverðtryggða flokkinn ISLA CB 23 voru samtals 1.120 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 5,73%. Heildartilboð voru 1.120 m.kr. á bilinu 5,70% - 5,73%. Heildarstærð flokksins verður 12.800 m.kr. eftir útgáfuna.
Samþykkt tilboð í verðtryggða flokkinn ISLA CBI 28 voru samtals 2.540 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 2,25%. Heildartilboð voru 3.140 m.kr. á bilinu 2,14% - 2,29%. Heildarstærð flokksins verður 2.540 m.kr. eftir útgáfuna.
Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 11. febrúar næstkomandi.
Í samræmi við útboðstilkynningu kaupir Íslandsbanki til baka 840 m.kr. af ISLA CB 19 og 2.620 m.kr. af ISLA CBI 19 gegn sölu nýrra skuldabréfa í útboðinu.
Nánari upplýsingar veita:
Fjárfestatengsl - Gunnar S. Magnússon, ir@islandsbanki.is og í síma 440 4665.