Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á sértryggðum skuldabréfum.
Heildareftirspurn í útboðinu var 6.420 m.kr.
Samþykkt tilboð í óverðtryggða flokkinn ISLA CB 21 voru samtals 260 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 4,72%. Heildartilboð voru 560 m.kr. á bilinu 4,66% -4,90%. Heildarstærð flokksins verður 3.000 m.kr. eftir útgáfuna.
Samþykkt tilboð í óverðtryggða flokkinn ISLA CB 23 voru samtals 2.320 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 4,77%. Heildartilboð voru 2.320 m.kr. á bilinu 4,70% - 4,77%. Heildarstærð flokksins verður 16.900 m.kr. eftir útgáfuna.
Samþykkt tilboð í verðtryggða flokkinn ISLA CBI 28 voru samtals 2.440 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 1,82%. Heildartilboð voru 3.540 m.kr. á bilinu 1,73% - 1,88%. Heildarstærð flokksins verður 12.760 m.kr. eftir útgáfuna.
Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 21. maí næstkomandi.