Rétt er að vekja athygli á því að í skilmálum óverðtryggðra húsnæðislána með breytilegum vöxtum sem veitt voru á tilgreindu tímabili á árunum 2012 til 2021, eru ákvæði sem heimila viðskiptavinum að sækja um vaxtagreiðsluþak.
Vaxtabreytingarnar eru eftirfarandi:
- Vextir á óverðtryggðum innlánsreikningum hækka um allt að 0,25 prósentustig. Almennir veltureikningar haldast óbreyttir.
- Breytilegir vextir óverðtryggðra húsnæðislána hækka um 0,25 prósentustig.
- Breytilegir óverðtryggðir kjörvextir hækka um 0,25 prósentustig.
- Breytilegir óverðtryggðir kjörvextir Ergo og vextir bílalána og bílasamninga hækka um 0,25 prósentustig.
- Yfirdráttarvextir einstaklinga og fyrirtækja hækka um 0,25 prósentustig.
Breytingar á lánum sem falla undir lög um neytendalán eða lög um fasteignalán til neytenda taka þó gildi í samræmi við skilmála þeirra og tilkynningar þar að lútandi.
Breytingar á óverðtryggðum breytilegum vöxtum húsnæðislána taka gildi þann 1. janúar næstkomandi.