Íslandsbanki hf. verður með víxlaútboð miðvikudaginn 16. maí 2018.
Boðnir verða út 6 mánaða flokkurinn ISLA 18 1120 og 9 mánaða flokkurinn ISLA 19 0221.
Verðbréfamiðlun Íslandsbanka hefur umsjón með útboðinu. Tilboðum skal skilað á tölvupóstfangið vbm@isb.is fyrir kl. 16:00 þann 16. maí en greiðslu- og uppgjörsdagur er 22. maí 2018.
Nánari upplýsingar veita: Fjárfestatengsl - Gunnar S. Magnússon, ir@islandsbanki.is og í síma 440 4665.