Íslandsbanki hf. verður með útboð á sértryggðum skuldabréfum þriðjudaginn 28. febrúar 2017 í samræmi við útgáfudagatal bankans.
Boðnir verða út óverðtryggði flokkurinn ISLA CB 19 og verðtryggðu flokkarnir ISLA CBI 22 og ISLA CBI 26. Stefnt verður að skráningu þeirra í Kauphöll 7. mars.
Verðbréfamiðlun Íslandsbanka hefur umsjón með útboðinu. Hægt er að nálgast frekari upplýsingar í síma 440 4490 eða með tölvupósti á vbm@isb.is.