Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á sértryggðum skuldabréfum.
Heildareftirspurn í útboðinu var 3.720 m.kr.
Samþykkt tilboð í verðtryggða flokkinn ISLA CBI 24 voru samtals 600 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 2,58%. Heildartilboð voru 2.200 m.kr. á bilinu 2,56% - 2,62%. Heildarstærð flokksins verður 23.700 m.kr. eftir útgáfuna.
Samþykkt tilboð í verðtryggða flokkinn ISLA CBI 30 voru samtals 720 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 2,56%. Heildartilboð voru 1.520 m.kr. á bilinu 2,55% - 2,60%. Heildarstærð flokksins verður 21.180 m.kr. eftir útgáfuna.
Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 3. Maí næstkomandi.
Heildarfjárhæð útistandandi sértryggðra skuldabréfa Íslandsbanka að afloknu útboði verður að nafnverði 117.180 m.kr.
Nánari upplýsingar veita: Fjárfestatengsl - Gunnar S. Magnússon, ir@islandsbanki.is og í síma 440 4665.