Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á sértryggðum skuldabréfum og víxlum.
Verðtryggði flokkurinn ISLA CBI 26 var boðinn út og seldust 980 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 3,31%. Heildareftirspurn í útboðinu var 1,06 ma. kr.
Heildarstærð ISLA CBI 26 að afloknu útboði verður 12,88 ma. kr. Heildarfjárhæð útistandandi sértryggðra skuldabréfa Íslandsbanka verður að nafnverði 65,21 ma. kr.
Seldir víxlar í 3ja mánaða flokkinn ISLA 16 0915 voru að nafnvirði 1,46 ma. kr. á 6,45% flötum vöxtum (verð 98,3957) og í 6 mánaða flokkinn ISLA 16 1215 seldust að nafnvirði 0,4 ma. kr. á 6,45% flötum vöxtum (verð 96,8659). Heildareftirspurn var 4,08 ma. kr.
Í kjölfar skráningar útboðsins verður heildarfjárhæð útistandandi víxla Íslandsbanka 9,84 ma. kr.
Stefnt er að töku til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 16. júní næstkomandi.