Glitnir hefur nú undirritað samning um að afhenda Seðlabanka Íslands og íslenska ríkinu stöðugleikaframlag slitabúsins. Hluti af stöðugleikaframlaginu er 95% hlutur Glitnis í Íslandsbanka. Fyrir átti ríkið 5% hlut og mun bankinn því verða alfarið í eigu ríkisins. Þessi breyting er háð samþykki Samkeppniseftirlitsins og munu eigendaskiptin ekki eiga sér stað fyrr en það samþykki er fengið.
Eins og fram hefur komið mun breytt eignarhald ekki hafa áhrif á daglega starfsemi Íslandsbanka og munu viðskiptavinir og starfsmenn ekki finna fyrir breytingum vegna þessa.
Islandsbanki hf. : 95% hlutur afhentur Seðlabanka Íslands og íslenska ríkinu
Glitnir hefur nú undirritað samning um að afhenda Seðlabanka Íslands og íslenska ríkinu stöðugleikaframlag slitabúsins.