Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á víxlum til sex og tólf mánaða. Í heild bárust tilboð upp á 4.280 m.kr. og var tilboðum tekið fyrir 2.240 m.kr.
Seldir voru víxlar til 6 mánaða að nafnverði 2.240 m.kr. á 4,30% flötum vöxtum. Heildartilboð voru 3.940 m.kr. á bilinu 4,20% - 4,35%.
Í 12 mánaða víxilinn bárust tilboð að nafnverði 340 m.kr. á bilinu 4,34%-4,60%. Öll tilboð voru afþökkuð.
Stefnt er á að því að víxlarnir verði teknir til viðskipta á Nasdaq Iceland 16. janúar.