Íslandsbanki breytir vöxtum

Breytingar verða á vöxtum inn- og útlána Íslandsbanka 2. desember næstkomandi og taka að mestu mið af lækkun stýrivaxta Seðlabankans þann 20. nóvember.


Útlán 

  • Breytilegir vextir óverðtryggðra húsnæðislán lækka um 0,50 prósentustig
  • Fastir vextir til 5 ára óverðtryggðra húsnæðislána lækka um 0,40 prósentustig
  • Fastir vextir til 3ja ára óverðtryggðra húsnæðislána lækka um 0,10 prósentustig
  • Vextir á yfirdráttarlánum lækka um 0,50 prósentustig 
  • Fastir vextir á verðtryggðum húsnæðislánum hækka um 0,20 prósentustig
  • Breytilegir vextir á verðtryggðum húsnæðislánum hækka um 0,30 prósentustig
  • Óverðtryggðir kjörvextir lækka um 0,5 prósentustig
  • Verðtryggðir kjörvextir hækka um 0,30 prósentustig
  • Óverðtryggðir kjörvextir Ergo, vextir bílalána og bílasamninga lækka um 0,50 prósentustig 

Innlán

  • Vextir á óverðtryggðum sparnaðarreikningum lækka um 0,50-0,60 prósentustig
  • Vextir á verðtryggðum innlánum hækka um allt að 0,30 prósentustig 

Breytingar á lánum sem falla undir lög um neytendalán eða lög um fasteignalán til neytenda taka þó gildi í samræmi við skilmála þeirra og tilkynningar þar að lútandi.

Breytingar á vaxtakjörum innlánsreikninga sem falla undir lög um greiðsluþjónustu sem eru umfram lækkun stýrivaxta taka gildi að tveimur mánuðum liðnum.