Breytingar verða á vöxtum inn- og útlána Íslandsbanka 22. apríl næstkomandi
- Fastir vextir óverðtryggðra húsnæðislána til þriggja ára lækka um 0,55 prósentustig
- Fastir vextir óverðtryggðra húsnæðislána til fimm ára lækka um 0,15 prósentustig
- Breytilegir vextir verðtryggðra húsnæðislána hækka um 0,30 prósentustig
- Fastir vextir verðtryggðra húsnæðislána hækka um 0,10 prósentustig
- Verðtryggðir kjörvextir hækka um 0,30 prósentustig
- Vextir á verðtryggðum innlánsreikningum hækka um allt að 0,20 prósentustig
- Vextir á óverðtryggðum innlánsreikningum lækka um allt að 0,10 prósentustig
- Vextir á innlánsreikningum í erlendum gjaldmiðlum lækka um 0,30 prósentustig
Breytingar á lánum sem falla undir lög um neytendalán eða lög um fasteignalán til neytenda taka þó gildi í samræmi við skilmála þeirra og tilkynningar þar að lútandi.
Breytingar á vaxtakjörum innlánsreikninga sem falla undir lög um greiðsluþjónustu taka gildi að tveimur mánuðum liðnum.