Íslandsbanki hf. hefur í dag keypt til baka 75 milljónir sænskra króna af 100 milljóna sænskra króna skuldabréfi (ISIN XS 1760783164) sem er á gjalddaga 1. febrúar 2021. Bréfin verða afskráð að afloknu uppgjöri 25. júní 2020.
Þann 12. maí 2020 tilkynnti bankinn um fyrirhuguð endurkaup á útistandandi fjárhæð af 500 milljóna evra skuldabréfaútgáfu á gjalddaga 7. september 2020. Til þessa hefur bankinn ekki keypt nein bréf til baka.