Drög að uppgjöri Íslandsbanka hf. fyrir 3F21 liggja nú fyrir. Drögin benda til þess að hagnaður bankans hafi numið 7,6 ma. kr. á fjórðungnum og að arðsemi eigin fjár á ársgrundvelli í hafi verið 15,7%. Greiningaraðilar höfðu spá 4,6 ma. kr. hagnaði (sjá hér). Til samanburðar nam hagnaður bankans 3,4 ma. kr. á 3F20 og arðsemi eiginfjár 7,4%.
Rekstrartekjur fjórðungsins nema um 13,3 ma.kr. sem er 20,6% aukning frá 3F20. Þar af nema hreinar vaxtatekjur um 8,8 ma. kr., hreinar þóknanatekjur um 3,4 ma. kr. og hreinar fjármunatekjur um 0,9 ma. kr. Hreinar fjármunatekjur jukust aðallega vegna jákvæðrar virðisbreytingar á fjárfestingu í óskráðum hlutdeildarfélögum. Rekstrarkostnaður fjórðungsins nemur um 5,7 ma. kr. samanborið við 5,6 ma. kr. á 3F20.
Frávikin milli ára og frá markmiðum bankans skýrast að stærstum hluta af því að virðisrýrnun er jákvæð og er um 1,8 ma. kr. færður til tekna vegna þess í fjórðungnum að mestu leyti vegna bjartari horfa í ferðaþjónustu og vegna minni óvissu í mati á vanefndarlíkum einstaklinga í kjölfar uppfærðs áhættumatslíkans. Til samanburðar færði bankinn um 1,1 ma. kr. til gjalda í virðisrýrnun á 3F20 sem tengdist að mestu leyti þeirri óvissu sem uppi var vegna COVID-19 faraldursins á þeim tíma.
Áréttað er að uppgjörið og kynningarefni fyrir þriðja ársfjórðung 2021 er enn í vinnslu og því geta áðurnefndar tölur tekið breytingum fram að birtingardegi þann 28. október næstkomandi.