Íslandsbanki hefur birt grunnlýsingu fyrir skuldabréfaútgáfur bankans sem skráðar eru á skipulagðan verðbréfamarkað, Nasdaq Iceland.
Grunnlýsingin, dagsett 29. júní 2020, er gefin út á ensku og birt á vefsíðu bankans, https://www.islandsbanki.is/is/vara/bankinn/fjarmognun-bankans.
Skjölin má nálgast á pappírsformi hjá útgefanda, Íslandsbanka hf., Hagasmára 3, 201 Kópavogi.