Fundurinn mun fara fram í höfuðstöðvum bankans, Norðurturni, Hagasmára 3, 201 Kópavogi og verður jafnframt aðgengilegur rafrænt. Hlekkur á vefstreymi verður sendur á fundargesti þegar nær dregur.
Vegna gildandi samkomutakmarkana vill Íslandsbanki hvetja fundargesti aðalfundar til að nýta vefstreymi í stað þess að mæta á fundarstað.
Dagskrá aðalfundar
- Setning fundar
- Skýrsla stjórnar um starfsemi bankans 2020
- Staðfesting ársreiknings fyrir árið 2020
- Ákvörðun um greiðslu arðs og ráðstöfun hagnaðar bankans á árinu 2020
- Kosning stjórnar- og varamanna
- Kosning endurskoðunarfélags
- Ákvörðun um laun til stjórnar fyrir næsta kjörtímabil
- Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu
- Önnur mál
Fundurinn sem og fundargögn verða á íslensku.
Aðilar í framboði til stjórnar Íslandsbanka á aðalfundi bankans 2021