Helstu atriði í fjárhagslegri afkomu annars ársfjórðungs 2024 (2F24)
- Hagnaður af rekstri nam 5,3 milljörðum króna á öðrum ársfjórðungi 2024 (2F23: 6,1 milljarðar króna). Arðsemi eigin fjár var 9,7% á ársgrundvelli (2F23: 11,5%).
- Hreinar vaxtatekjur voru hærri en spár greinenda gerðu ráð fyrir og námu 12,5 milljörðum króna á öðrum ársfjórðungi 2024. Það er samdráttur um 1,0% frá 12,6 milljörðum króna á 2F23.
- Vaxtamunur var 3,1% á öðrum ársfjórðungi, samanborið við 3,2% á sama ársfjórðungi 2023.
- Hreinar þóknanatekjur lækkuðu um 4,8% samanborið við annan ársfjórðung 2023 og námu samtals 3,4 milljörðum króna á fjórðungnum.
- Hrein fjármagnsgjöld námu 499 milljónum króna á öðrum ársfjórðungi 2024, samanborið við fjármagnsgjöld að fjárhæð 559 milljónir króna á 2F23.
- Stjórnunarkostnaður nam 7,3 milljörðum króna á öðrum ársfjórðungi 2024, samanborið við 6,7 milljarða króna á 2F23, sem er 8,4% hækkun milli ára. Undanskildar eru gjaldfærslur á hvorum ársfjórðungi vegna stjórnvaldssekta, að fjárhæð 470 milljónir króna vegna 2F24 og 860 milljónir króna vegna 2F23.
- Kostnaðarhlutfall bankans var 46,4% á fjórðungnum. Kostnaðarhlutfallið var 42,6% á 2F23. Hlutföllin undanskilja í báðum tilvikum gjaldfærslur vegna greiðslu stjórnvaldssektar á hvorum fjórðungi.
- Virðisbreyting fjáreigna var jákvæð um 137 milljónir króna á öðrum ársfjórðungi 2024 samanborið við jákvæða virðisbreytingu um 1.245 milljónir króna á öðrum ársfjórðungi 2023. Áhættukostnaður útlána (e. cost of risk) var -0,04 prósentustig á ársgrundvelli á öðrum ársfjórðungi 2024 samanborið við -0,40 prósentustig á sama ársfjórðungi 2023.
- Útlán til viðskiptavina jukust um 28,3 milljarða króna á fjórðungnum, eða um 2,3% frá fyrsta ársfjórðungi og voru 1.277 milljarðar króna í lok annars ársfjórðungs 2024.
- Innlán frá viðskiptavinum jukust um 36,6 milljarða króna á öðrum ársfjórðungi ársins 2024 frá fyrsta ársfjórðungi 2024, eða um 4,2%. Innlán frá viðskiptavinum námu 916 milljörðum króna í lok fjórðungsins.
- Eigið fé nam 216,5 milljörðum króna í lok ársfjórðungsins, samanborið við 224,7 milljarða króna í lok árs 2023.
- Eiginfjárhlutfall var 23,1% í lok annars ársfjórðungs 2024, samanborið við 25,3% í árslok 2023. Samsvarandi eiginfjárhlutfall almenns þáttar 1 (CET1) var 19,9%, samanborið við 21,4% í árslok 2023, sem er 450 punktum yfir kröfum eftirlitsaðila, og hærra en fjárhagslegt markmið bankans um að vera með 100-300 punkta eiginfjár svigrúm umfram kröfur eftirlitsaðila.
Helstu atriði í fjárhagslegri afkomu á fyrri helmingi ársins ársfjórðungs 2024 (1H24)
- Hagnaður af rekstri bankans á fyrri helmingi ársins 2024 nam 10,7 milljörðum króna (1H23: 12,4 milljarðar króna). Arðsemi eigin fjár var 9,8% á ársgrundvelli (1H23: 11,4%).
- Hreinar vaxtatekjur á fyrri helmingi ársins námu 24,6 milljörðum króna, sem er samdráttur um 1,7% milli ára.
- Hreinar þóknanatekjur drógust saman um 4,9% milli ára, og námu 6,7 milljörðum króna á fyrri helmingi ársins, samanborið við 7,1 milljarða króna á fyrri helmingi síðasta árs.
- Hrein fjármagnsgjöld voru 735 milljónir króna á fyrri helmingi ársins 2024, samanborið við fjármagnsgjöld að fjárhæð 21 milljón króna á sama helmingi í fyrra.
- Stjórnunarkostnaður var 14,7 milljarðar króna fyrstu sex mánuði ársins, ef frá er talin 470 milljón króna stjórnvaldssekt sem gjaldfærð var á öðrum ársfjórðungi, samanborið við 13,7 milljarða króna stjórnunarkostnað á fyrri hluta árs 2023, ef frá er talin gjaldfærsla að fjárhæð 860 milljónir króna vegna stjórnvaldssektar.
- Kostnaðarhlutfall bankans hækkaði úr 42,3% á fyrri hluta árs 2023 í 45,6% á fyrri hluta ársins 2024.
- Virðisrýrnun á fjáreignum nam 567 milljónum króna á fyrri helmingi ársins, en virðisbreyting fjáreigna var jákvæð um 570 milljónir króna fyrir sama tímabil árið áður.