Það getur verið æði kostnaðarsamt að eiga og reka bíl. Auk þess getur komið sá tími að við treystum okkur ekki eða kjósum síður að keyra sjálf og viljum skoða aðra fararmáta. En hvað kostar þetta allt saman? Er ekki allt of dýrt að skipta bílnum út fyrir leigubílaferðir eða gæti það verið raunhæfur kostur
Leigubílar
Á grafinu hér að neðan er að finna dæmi um kostnað við tiltekinn fjölda leigubílaferða í viku hverri. Auk þess er hægt að leigja leigubíl í klukkustund. Hér er miðað við að eknir séu 5 kílómetrar í hvora átt, sem samsvarar t.d. akstri frá Seltjarnarnesi í Kringluna.