Íslandsbanki lækkar vexti

Breytingar verða á óverðtryggðum vöxtum inn- og útlána Íslandsbanka 9. október næstkomandi í kjölfar stýrivaxtaákvörðunar Seðlabanka Íslands.


Breytingar verða á óverðtryggðum vöxtum inn- og útlána Íslandsbanka 9. október næstkomandi:

  • Breytilegir vextir óverðtryggðra húsnæðislána lækka um 0,25 prósentustig
  • Óverðtryggðir kjörvextir lækka um 0,25 prósentustig
  • Vextir á óverðtryggðum sparnaðarreikningum lækka um 0,25 prósentustig
  • Vextir á óverðtryggðum veltureikningum lækka um 0,25 prósentustig
  • Vextir á yfirdráttarlánum lækka um 0,25 prósentustig
  • Breytilegir óverðtryggðir kjörvextir Ergo og óverðtryggðir vextir bílalána og bílasamninga lækka um 0,25 prósentustig